|
 |
|
29.1.08
Hef ákveðið að færa mig um set, er núna staðsettur á ff.blog.is, endilega kíkjið við
Posted at 9:23 pm by Andrim
Permalink
2.1.08
Jæja, best að skella inn tónlist einhverjum topplistum. Tónlist og kvikmyndir eru þó ekki í neinni sérstakri röð, bara eftir minni.
Plötur síðasta árs: Ljótu hálfvitarnir Linkin Park - Minutes to Midnight Fall out Boy - Infinity on High Korn - Unplugged My chemical romance - The Black Parade Mika - Life in Cartoon motion Dixie Chicks - Taking the Long Way Eels - Daisies Of The Galaxy
Lög síðasta árs: Jamiroquai - (Don't) give hate a chance Maroon 5 - Makes me wonder The Frey - How to save a life OK GO - Oh no VilHelm - The Midnight Circus VilHelm - Your Dansing Song Alanis Morissette - Let's do it (let's fall in love) Sniglabandið & Nylon - Britney Travis - My Eyes Sprengjuhöllin - Verum í sambandi Serj Tankian - Empty Walls Modest Mouse - Dashboard Hjálmar - Leidin okkar allra Foo Fighters - The Pretender
Kvikmyndir síðasta árs: The Simpsons Movie 300 Live Free or Die Hard Smokin' Aces Shoot 'em up I am Legend
Húmor/biturð síðasta árs: Knattspyrnukonur kusu ekki Margréti Láru Viðarsdóttur sem knattspyrnukonu ársins nokkurum mánuðum áður en hún var kosin bæði knattspyrnukona ársins og íþróttamaður ársins af íþróttafréttariturum.
Lið síðasta árs: New England Patriots
Skandall síðasta árs: Klámið á forsíðu Smáralindabæklingsins
Upprisa ársins/ Jesús síðasta árs: Lúkas
Heitasti skemmtistaður síðasta ár: Pravda
Þú síðasta árs: Þú
"í vinnslu" síðasta árs: B.a. ritgerð í íslensku
Ha? síðasta árs: Friðarsúlan í Viðey sem á að minna fólk á að halda friðinn... en bara stundum
Trend síðasta árs: Skotárásir í skólum
Þetta verður að nægja í bili, nenni ekki að láta "í vinnslu" síðasta árs ná langt fram á þetta ár.
Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og gleðilegs nýs árs (það eru jú ennþá jól)
Posted at 2:11 pm by Andrim
Permalink
2.12.07
Það er ekki bara desember sem gengið hefur í garð heldur fylgdi aðventan með í kjölfarið. Það er spennandi. Allt í einu eru bara 22 dagar til jóla. Skrítið hvað þetta getur liðið hratt allt saman.
Ég er búinn að vera mjög latur í þessu bloggi en það verður þá bara að hafa það.
Það er eitt sem fer eilítið í taugarnar á mér. En það er þegar fólk fer að tuða um gamlar lummur sem ætti að vera öllum kunnur. Það sem fer þó í taugarnar á mér er ekki fólkið sem er að tuða eða hvað það er að tuða, heldur hitt að ég átta mig á því að það er þörf á því. Það er heimskulegt að það þurfi að minna fólk á að allir eru jafnir og að þó að einhverjir hafi ólíkar skoðanir eru þeir í raun ekki þroskaheftir eða vitlausir. Mér finnst einhvernvegin eins og það ætti að vera almenn vitneskja. Önnur neikvæð orðaröð hér, maðurinn sem keyrði á 4 ára strák og stakk svo af er líklega orðið mesta fúlmenni líðandi stundar á Íslandi. Það er afsakanlegt að fólk skuli klessa á hitt og þetta, en að stinga af. Það er með öllu ófyrirgefanlegt (sem og ólöglegt). Var að lesa það áðan á mbl.is að strákurinn lést í gær á gjörgæslu Landspítalans. Jæja, vona að ég sé ekki búinn að sökkva lesendum í þunglyndi, það var ekki ætlunin. Desember er kominn sem og aðventan og þar sem ljósum er að fjölga í gluggum landsmanna finnst manni oft eins og birtan smiti út frá sér í fólkið. Vonandi að landsmenn haldi sér nokkuð rólegum á næstunni.
Góða skemmtun á næstunni og gleðilega aðventu.
Posted at 11:54 am by Andrim
Permalink
21.10.07
Lítið sem ekkert er eftir af októbermánuði en það þýðir ekki að syrgja það, það er ekki alslæmt því það þýðir að það styttist einnig í jólin. Já, ég sagði jólin, ég er ekki farinn að hlakka til jólanna, en ég er meðvitaður um að þau muni koma einhverntíman um það bil akkúrat 24.desember.
Ég er búinn að vera mjög lélegur að blogga og mjög lélegur að skoða blogg hjá öðrum, held meira að segja að ég sé ekki búinn að kommenta hjá neinum í þessum mánuði. Skondið hvernir hægt er að detta úr gírnum svona algjörlega og með öllu.
Ég fer að öllum líkindum norður yfir heiðar 1.nóvember þar sem að vetrarfrí verður í skólanum og ég væri alveg til í að kíkja heim í Eyjafjörðinn, það er þá jafnvel að maður eigi eftir að hafa tíma til að setjast niður og athuga hvað á að vera að gerast í þessari B.A. ritgerð sem ég á að skila núna einhverntíman í vetur. úfff úfff úfff
Bækur líðandi stundar: Gísla Saga Súrssonar Grettir Sterki Ströndin Blá Sagnorð og Smáorð
Allt saman skemmtilegar bækur sem allir ættu að kannast við.
Lög líðandi stundar: Jeff Who? - She's got the touch Sniglabandið og Nylon - Britney Hjálmar - Leiðin okkar allra
Posted at 12:10 pm by Andrim
Permalink
1.10.07
Haustið er komið fyrir víst. Góða veðrið sem búið var að vera í sumar er farið og við tók rok og rigning. Rigninguna elska ég en er ekki mikill aðdáandi roksins. Þrátt fyrir það þá er gaman að haustinu sérstaklega þar sem ég er í tveimur skólum. Núna sé ég í anda fólk taka andköf og grípa fyrir vit sér (á sama tíma!) já, ég er eins og stendur beintengdur tveimur skólum. Ég er að skrifa lokaritgerð í íslensku í Háskóla Íslands (sem gengur hægt en gengur þó...?) sem á að skila núna um áramótin og svo er ég skráður í Víkurskóla, sem fyrir þá sem ekki vita er grunnskóli í Grafarvogi. Þar er ég skráður kennari í íslensku. Það þýðir jafnframt að ég fæ duglegt jólafrí og get notið jólahátíðarinnar fyrir norðan í faðmi fjölskyldunnar. - Annað í fréttum er að: * ég svaf ekkert síðustu nótt, ég veit ekki af hverju. Er ekki búinn að vera þreyttur síðsustu 34 tíma, það er möguleiki að ég sé eitthvað veikur, vona þó ekki. * Ég er búinn að átta mig á að sjónvarpsflakkari er málið, æðisleg uppfinning. * Var að uppgvöta bókina "Orðabók andskotans", hún er æðisleg.  Þar koma meðal annars fram eftirfarandi orðskýringar: Drepa: so. skapa lausa stöðu án þess að útnefna eftirmann Belladonna: kv. á ítölsku: fögur kona, á ensku: banvænt eitur: ofurskýrt dæmi um skyldleika tveggja tungumála. Afbrotamaður: k. maður gæddur meiri athafnavilja en dómgreind, sem tekið hefur óheppilegu ástfóstri við gott tækifæri.
Ég er alltaf að átta mig betur á því hvað ég elska húmor. Kannski maður fari að gera eitthvað í því.
Meira seinna
Posted at 8:32 pm by Andrim
Permalink
26.8.07
Þá er maður kominn heim aftur og það er æðislegt. Þó að það hafi verið mjög fínt á Rhodos, Rodos eða Rhodes þá er Ísland alltaf best í heimi. Saknaði þess að liggja undir sæng og að vera ekki að drepast úr hita. Það kemur mér oft á óvart hvað ég fyllist miklu þjóðernisstolti. En þó verður maður að viðurkenna að mörg lönd hafa upp á mjög margt að bjóða, annað væri kjánaskapur. Ég er reyndar kjáni, en ekki flón. Held ég.
Ég ætla að taka Emm-íska aðferð á að súmmera upp Grikklandsförina: Þrengsli - Reykingarherbergi - Sundlaugagarður - Einn strærsti rennibrautagarður í Evrópu - Fiðrildadalur - Mini Golf - Kastali - Akrapólis - FBI - Aquarium - Mythos.
Annars var verið að hringja í mig og segja mér að ég þarf að vakna klukkan 5 í fyrramálið, þannig að ég er búinn að missa alla löngun í meira blogg.
Lög líðandi stundar: Green Day - Working Class Hero
Posted at 9:03 pm by Andrim
Permalink
13.8.07
A computer once beat me at chess, but it was no match for me at kick boxing
Posted at 9:39 pm by Andrim
Permalink
1.8.07
Posted at 11:58 am by Andrim
Permalink
28.7.07
Já, ég er svo sannarlega með á á tá. Þ.e.a.s. meitti, þ.e.a.s. sár. Fór til læknis í dag sem klippti á mér tánögl, en þó ekki í þá átt sem fólk er vant að klippa. Ó-nei-nei-sei. Núna er ég með mjög deyfða stórutá sem jafnframt er með einhverri skemmtilegri sýkingu í... jey, En það ætti að lagast fljótlega. Þakkir fær læknaneminn sem gerði sitt besta til að hjálpa mér. Ég vona þó sjálfur að þetta sé það síðasta sem hægri fóturinn á mér gerir af sér þetta sumarið.
Eins og þeir sem lásu síðastu bloggafærslu (þ.e.a.s. allavegana Auður :) )sáu, þá er ég nú kominn frá stuttu stoppi í Bandaríkjunum. Það er tvennt sem kom mér á óvart varðandi þá ferð. 1. flestir þarna í BNA eru rosalega kurteisir og almennilegir. 2. Flestir virðast vera þónokkuð latir, og það virðist vera byggt í kringum það. Þessi leti kom helst fram í tveimur tilvikum, annars vegar þegar ég var staddur í öðrum enda á verslunarmiðstöð (um 3*stærri en Smáralindin) og spurði upplýsingar um raftækjaverslun, þá sagði hún mér að þannig búð væri í hinum enda verslunarmiðstöðvarinnar, þannig að það væri kannski best fyrir mig að keyra þangað! Í hitt skipti spurði ég afgreiðslu hótelsins hvar ein búð væri sem ég ætlaði að labba í, hann sagði það ekki gerlegt að labba þangað, það væri alveg fjórðungur úr mílu þangað ( sem eru 400 metrar). Það reyndist líka furðulega erfitt að labba þangað þar sem ég þurfti að fara yfir 3 götur, 1 hafði gönguljós. Á hinum þurfti ég að hætta lífi mínu.
Er á pensilíni sem er frekar leiðinlegt þar sem mig dauðlangaði í bjór, sá þó mér til mikillar gleði að í lýsingu lyfsins segir " Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins". Tók ég því sem svo að ég mætti fá mér einn bjór. Sem ég og er að gera.
Þegar ég var í BNA gerði ég eilítið sem ég bjóst aldrei við að ég myndi gera, ég keypti Harry Potter... reyndar fyrir Lilju, en samt... Var annars að lesa það í dag að J. K. Rowling væri að vinna í tveimur hugmyndum að bókum, ein ætluð fyrir börn, en hin er ekki ætluð börnum. Ég verð að viðurkenna að mér þykir það eilítið spennandi því það er augljóst að þó að ég hafi ekki verið að fíla Harry Potter þá er þetta góður höfundur og gæti verið að hún skrifi bækur sem gætu höfðað til mín í framtíðinni.
Lag líðandi stundar: Maroon 5 - Makes me wonder
Posted at 1:53 am by Andrim
Permalink
24.7.07
Þarf að taka pensilín næstu daga, það er í einu orði æðislegt og spennandi líka. Ekki skemmir að það er vesen líka. Ég held að hægri fóturinn á mér hati mig. Annað hvort það eða þá að hann er kominn á mótþróaskeiðið og sé að reyna að vera með eitthvað vesen. Hvort heldur sem það er þá er hann að angra mig. Fer til US and A á morgun sem er ekki frásögu færandi, en samt mun ég færa þá sögu frá, enda er ég trítilóður, en það vissu það nú margir fyrir. Það var auk þess enginn tilgangur í þessari frásögn nema þá til að láta vita að ég mun ekki svara símhringingum frá og með seinniparti morgundagsins og til föstudagsmorguns. Veit ekki hvort að margir eigi eftir að taka þetta til sín, en það er þá bara þeirra mál. var að fá þær góðu fréttir að Auður og Mimmi eru að fara að færa sig um set og munu koma til okkar í Eggertsgötuna í ágúst, það þykir mér spennandi og mun ég að sjálfsögðu bjóða þau velkomin með kaffi og kökum(eða kannski köku) þegar þar að kemur. Það er þó verst að við Lilja þurfum að flytja okkur um set fyrir áramót og fara yfir í eins manns kompu, ef ég gerist svo djarfur að skila ritgerðinni einhvern tíman af mér. Er búinn að vera að dunda mér við að lesa teiknimyndasögur. Þá voru þessar með þeim betri:  Þarf að fá mér kaffi, meira um það drama við tækifæri. Lög líðandi stundar: Linkin Park - The little things give you away Ljótu hálfvitarnir - smink Ljótu hálfvitarnir - bjór, meiri bjór Ljótu hálfvitarnir - Stóri dagurinn
Posted at 5:53 pm by Andrim
Permalink
|
|
|